Sérfræðingar ríkisbankans Landsbankans sofa vart um nætur þessi dægrin eftir að í ljós kom að launakostnaður flugfélagsins Icelandair hækkaði um rétt rúm 30 prósent á fyrrihluta ársins.

Alveg hræðilegt að starfsfólk Icelandair njóti betri launakjara samkvæmt spekingum Landsbankans
Enn þann dag í dag vitna fjölmiðlar landsins í „sérfræðinga“ í bönkunum eins og það sé upphaf og endir alls. Mikið til sömu sérfræðingar og sögðu að hér væri „allt í gúddí“ langt fram eftir árinu 2008 og eiga ekki únsu af orðspori eftir hjá vitibornum einstaklingum.
Fréttablaðið gerir sér í dag mat úr því að bankafræðingarnir á ríkisspenanum fái nú grænar bólur yfir launahækkunum hjá Icelandair. Með öðrum orðum: viðskiptafræðingar með eina milljón til tvær á mánuði að meðaltali hjá ríkisreknum Landsbankanum eru súrir með að fólk hjá öðru fyrirtæki fái brot af þeim launahækkunum sem til dæmis Alþingis- og embættismenn hafa fengið undanfarin misseri.
„Launakostnaður í flugi er reyndar alþjóðlegt áhyggjuefni en Icelandair má síst við miklum hækkunum.“
Hmmmmm. Látum okkur nú sjá.
A) Hvers vegna eru Jón og Gunna í fræðingadeild Landsbankans að hafa áhyggjur af launakostnaði flugfélaga almennt í heiminum? Hafa ekki undanfarin ár einmitt verið þau fyrstu í áraraðir sem flugfélög á heimsvísu sýna hagnað og það mikinn í sumum tilfellum? Á starfsfólkið ekki að njóta þess eins og auðugir hluthafar?
B) Og hvers vegna má Icelandair ekki við miklum hækkunum? Víst hafa hlutabréf flugfélagsins fallið duglega en arðgreiðslurnar hafa ekki verið skornar mikið við nögl. Þess utan á flugfélagið feita sjóði og hefur meðal annars notað hundruðir milljóna til að kaupa sín eigin bréf aftur. Arðgreiðslurnar töluvert hærri ef það hefði ekki verið gert.
C) Hvað er svo rangt við að veita starfsmönnum góðar launahækkanir? Icelandair, eins og önnur fyrirtæki, er ekkert annað en starfsfólkið. Án góðs starfsfólks er ekkert fyrirtæki, eða í besta falli lélegt fyrirtæki. Og undanfarin ár hefur Icelandair nánast verið í áskrift að verkföllum hjá eigin starfsfólki.
„Fræðingar“ á ríkisspenanum ættu að fara afar rólega í að gera lítið úr launahækkunum starfsmanna stórfyrirtækja á Íslandi. Ekki aðeins eru þeir sjálfir að maka krókinn mjög þokkalega á kostnað skattborgara á Íslandi hvers meðallaun nema 667 þúsund krónum, heldur og virðast þeir gleyma að það er almenningur sem heldur öllu á floti á klakanum. Ef almenningur allur nýtur góðra launa græða allir, bæði ríkið og einkafyrirtæki, því meira er keypt til brúksins. Hærri laun starfsfólks Icelandair hafa í för með sér meiri einkaneyslu sem aftur skilar sér til ríkisins í formi feitari skatttekna en gegnum fáa, feita hluthafa sem greiða lágan fjármagnstekjuskatt.
Og kannski, kannski verður þjónusta Icelandair betri líka 😉







