Flugfélagið Icelandair fer mikinn í fjölmiðlum síðustu daga að kynna jólagjafabréf sín sem ákjósanlega jólagjöf fyrir Gunnu og Stefán Íslandi. „Gefðu frí um jólin“ er slagorðið. Sem stemmir illa við verkföll sem eru líklega óumflýjanleg um jólin hjá flugfélaginu.

Nýr stjórnarformaður og forstjóri Icelandair. Sem fyrr vilja þeir verkföll fremur en að greiða mannsæmandi laun. Skjáskot
Verkföll hjá Icelandair minna dálítið á Kjötkrók, Stúf, Pottaskefil og aðra bræður þeirra. Bræðurnir ófrýnu koma einu sinni á ári til byggða og hjá Icelandair virðast verkföll vera árlegt fyrirbæri líka.
Enn einu sinni virðast forsvarsmenn Icelandair alls ófærir um að leysa innanbúðarágreining. Annaðhvort það eða að forsvarsmennirnir eru orðnir vanir því að stjórnmálamenn leysi vandamálin fyrir þá.
Nú lítur allt út fyrir að flugvirkjar Icelandair ætli í verkfall á sunnudaginn kemur og ef marka má söguna má gera ráð fyrir að verkfall verði raunin þá strax og eitthvað fram í janúar áður en forsvarsmenn Icelandair heimta að ríkið grípi í taumana og banni verkfall.
Nú þekkjum við hér ekki smáatriðin sem valda því að stjórnendur Icelandair hafna því alfarið að flugvirkjarnir fái þau lágmarkslaun sem þeir fara fram á í þessari lotu. Auðvitað ekki útilokað að flugvirkjarnir séu að heimta gull og grænan skóg með en líklegra er þó að þeir séu aðeins að fara fram á eðlilegar launahækkanir miðað við verðlag í landinu, 40 prósenta launahækkun þingmanna og ráðherra og auðvitað bónus fyrir að vinna vaktavinnu um kvöld og helgar svona í og með. Það er jú ekki auðvelt að elska sína nánustu þegar þú starfar óreglulega auk þess sem rannsóknir hafa sýnt að vaktavinna hefur slæm áhrif á líf og heilsu.
Öllu verra fyrir Icelandair er að vélar flugfélagsins eru svo gamlar að Pierce Brosnan lék James Bond þegar flestar vélar þess voru framleiddar og helsti leitarvefur heims hét Altavista. Google hafði ekki verið fundið upp.
Með tilliti til þess að floti flugfélagsins er einn sá allra elsti í Evrópu er kannski SÉRSTÖK ástæða til að hafa flugvirkjana góða! Eða hvað. Það þarf jú töluvert meira að vesenast kringum 22 ára gamlar vélar en þessar nýju, flottu hjá Wow Air og velflestum öðrum flugfélögum heims.
Látum ellimerki á vélum Icelandair aðeins liggja milli hluta þó. Enn stærra vandamál er að Icelandair virðist þurfa að díla við verkföll á hverju EINASTA ÁRI!!!
Gúggli einhver „verkföll+ Icelandair“ koma AÐEINS í ljós 63.900 greinar. Ók, margar af þeim greinum eiga ekkert við um Icelandair. Skoðum þá hvað kemur í ljós ef við leitum að „Icelandair + verkfall“ á vef Mbl. Aðeins skárri niðurstaða en samt slæm. Alls finnast níu síður af greinum um verkfall eða verkföll hjá Icelandair. Og ekki er Moggi neitt sérstaklega spenntur að fjalla neikvætt um Icelandair.
Hugsandi lesendur vita hvert við erum að fara með þetta. Og við ekki minnst einu orði ennþá á sífellt hörmulegra „jólagjafabréf“ flugfélagsins. En það kemur síðar 🙂







