Það nískast fleiri flugfélög gagnvart starfsfólkinu sínu en Icelandair. Það gerir hið írska Ryanair líka og nú loks ætlar töluverður fjöldi flugmanna þeirra í verkfall af því tilefni og það á háannatíma rétt fyrir jólin.

Veruleg röskun líklega þessi jólin hjá Ryanair.
BBC greinir frá því að 80 flugmenn Ryanair á Írlandi og flugmenn Ryanair víðar í Evrópu leggi niður störf þann 20. desember næstkomandi og hugsanlega lengur en það. Ástæðan sú að Ryanair viðurkennir ekki stéttarfélög og leyfir starfsfólki sínu ekki að eiga aðild að slíkum félögum. Það gerir flugfélaginu kleift að níðast töluvert meira á fólki þar sem réttindi þess eru nánast engin.
Gott mál í alla staði en verra fyrir þau okkar sem eiga bókað flug með Ryanair þann dag eða fyrir jólin því ljóst er að töluverð röskun verður á flugáætlun flugfélagsins og einhverja daga hið minnsta tekur að vinna úr því.







