Stórundarleg „stórfrétt“ hjá Fréttablaðinu þess efnis að kreditkortatryggingar dekki ekki leigu á bíl í Rússlandi þar sem HM fer fram næsta sumar. Nánar tiltekið kortatryggingar Vátryggingafélags Íslands.

Svo margar spurningar vakna við frétt Fréttablaðsins um kortatryggingar í Rússlandi.

Blaðamaðurinn sem skrifar hefur margra ára reynslu en spurningarnar sem vakna við lestur greinarinnar eru mun fleiri en þær sem greinin svarar.

Í fyrsta lagi gefur Vátryggingafélag Íslands ekki út nein kreditkort og þó tryggingafélagið dekki mögulega kortatryggingar fyrir tiltekin kortafyrirtæki þá hefur VÍS ekkert lokaorð um hvað er tryggt og hvað ekki af hálfu alþjóðlegra kortafyrirtækja.

Í öðru lagi erum við hér búin að þaulskoða smáa letrið í skilmálum okkar eigin íslensku korta og HVERGI er tekið fram að kortatryggingar gildi ekki við bílaleigu í Rússlandi eins og annars staðar.

Í þriðja lagi er það góð og gild regla, eins og við höfum fjallað um áður, að láta kortatryggingar alls ekki duga á ferðalögum erlendis. Nema þú sért með gull- eða platinum kort eru tryggingar á ferðalögum í daprara lagi og dekka ekkert nema smotterí. Hver okkar hendir ekki 200 rúblum/evrum/dollurum í sérstaka tryggingu við leigu á bíl erlendis og skiptir þá engu hvort það er í Frakklandi eða Rússlandi. Enginn vill vera í neinum vafa ef einhver nuddast upp við bílaleigubílinn erlendis eða eitthvað þaðan af verra.

Í fjórða lagi er í raun alveg fráleitt að ímynda sér að einhver sparkaðdáandi sé að fara að rúnta um sveitir Rússlands milli keppnisstaða á HM þegar almenningssamgöngur milli staða eru ÓKEYPIS!!! Ekki hvað síst þegar þrettán til fjórtán klukkustundir tekur að aka milli Moskvu, þar sem fyrsti leikur Íslands fer fram, og Volgograd, þar sem annar leikur Íslands fer fram. Það þó aðeins ef traffík er létt og fín. Mun styttra er frá Volgograd til Rostov þar sem þriðji leikur Íslands í riðlinu fer fram eða aðeins SJÖ tíma keyrsla. Svo þarf að komast til baka sömu leið því enginn er að fljúga beint heim frá Rostov. Bílaleigufólk þarf því að eyða TVEIMUR DÖGUM í bíl ef ekkert er stoppað á leiðinni. Algjörlega fráleit pæling.

Í fimmta lagi eru Íslendingar, og ekki síst Íslendingar sem fylgja landsliðinu, gefnir fyrir glaum og gleði og helst áfengi með. Langsótt að hægt sé að plata einn einstakling til að aka þvert og kruss um Rússland dögum saman með „hressa“ Íslendinga í bílnum.

Í sjötta lagi er svo ægilega margt skringilegt við þessa frétt. Til dæmis þetta: Þótt viðskipta- og platínukort séu með kaskó- og viðbótarábyrgðartryggingu gilda þær tryggingar ekki í Rússlandi, og nokkrum öðrum löndum. Og ekki síður þetta: Persónulega myndi ég ekki taka bílaleigubíl í Rússlandi. Ber okkur að skilja þetta sem svo að kaskó- og viðbótarábyrgðartryggingar kreditkorta gildi hvergi í heiminum? Eru þær tryggingar bara plat? Og hvað veit einhver Telma hjá VÍS um akstur í Rússlandi? Hefur hún ekið í Rússlandi? Hefur hún komið til Rússlands? Við vitum það ekki því blaðamaðurinn spyr ekki.

Alvarlega kjánaleg frétt. Við eigum betra skilið en þetta.

PS: við hér höfum ferðast nokkuð um Rússland og það okkar reynsla að það má fá ólíklegasta fólk til að gera ólíklegustu hluti gegn vinsamlegheitum og sæmilegri greiðslu. Þrír, fjórir einstaklingar saman gætu auðveldlega fundið heimamann í Moskvu sem rúllar liðinu til Volgograd og jafnvel áfram fyrir bensín á bílinn og nokkra þúsundkalla í kaupbæti. Svona ef þú ert ekki að nenna rútu eða lest 😉