Það er langstærsta flugþjónustufyrirtæki heims og þjónustar alls 850 flugfélög á heimsvísu og þar á meðal okkar ylhýra Icelandair. Illu heilli tímir fyrirtækið þó ekki að greiða fólkinu sínu lágmarkslaun.

Risafyrirtæki sem tímir ekki að greiða lögbundin lágmarkslaun. Er svo vitlaust að hætta viðskiptum við slíkt skítabatterí?

Fljúgandi fólk með augu í kolli þekkir ábyggilega merki hins velþekkta fyrirtækis Swissport en það starfar á velflestum flugvöllum heims og veitir alla hugsanlega þjónustu sem flugfélög og flugvellir gætu þurft á að halda.

En græðgi hefur orðið stærri fyrirtækjum en Swissport að falli gegnum tíðina og nú er Swissport milli tanna á fólki í Evrópu fyrir að greiða starfsfólki sínu ekki tilskilin lágmarkslaun. Nánar tiltekið í Bretlandi. Swissport er með öðrum orðum orðið McDonalds flugþjónustufyrirtækja.

Og hver eru lögbundin lágmarks mánaðarlaun í Bretlandi þessi dægrin? Jú, heilar 172.300 krónur miðað við gengi dagsins. Lágmarkslaun í Bretlandi því næstum 30 prósent lægri en fullar atvinnuleysisbætur á Íslandi!!!

Við myndum gjarnan vilja spyrja Icelandair út í að eiga viðskipti við stórfyrirtæki sem troða á starfsmönnum sínum en Fararheill ekki í uppáhaldi þar og svör því langsótt. En ef eitthvað er í lagi hjá yfirstjórn flugfélagsins þá hættir það umsvifalaust viðskiptum við Swissport.