Illu heilli er ekki lengur í boði fyrir klakabúa á Fróni að fljúga beint til pólsku borgarinnar Kraká. Það miður út af fyrir sig en ekki síður sökum þess að borgin er sú allra ódýrasta á pyngjunni ef fjölskylda eða par ferðast saman.

Hér hægt að njóta mjög þokkalega þrátt fyrir bág fjárráð.
Það eru niðurstöður árlegrar úttektar bresku póstþjónustunnar en sú ágæta stofnun gerir töluvert meira en Pósturinn hér heima sem virðist fátt kunna annað en skerða þjónustu og hækka verð.
Bretarnir fara árlega um helstu borgir Evrópu og mæla og meta hvar sé vænlegast að planta rassi fyrir fólk ef buddan leyfir ekki mikið. Það mikilvægt fyrir marga Breta nú þegar Brexit hefur fellt gengi pundsins duglega og ekki síður gagnlegt fyrir Íslendinginn, hvers gjaldmiðill er nú í sæmilegum hæðum.
Þeir bresku mæla verðgildi ýmissa hluta í hinum ýmsu borgum álfunnar en í körfuna fer margt það sem par eða hjón þurfa gróflega að greiða fyrir heilan dag af notalegheitum á erlendri grundu. Þar með talið matur á veitingastað, útsýnistúr, heimsókn í söfn, skutl frá flugvelli, gisting, kaffibolli og vínglas svo nokkuð sé nefnt.
Kraká hin pólska er fremst jafningja ef njóta á fyrir sem minnstan pening. Þar slær hún út Lissabon hina portúgölsku sem náði toppsætinu fyrir ári síðan. Ekki nóg með það heldur taka borgir í austurhluta Evrópu nánast öll toppsætin. Ríga, Vilníus, Búdapest og Prag komast allar á blað sem ódýrar að heimsækja og njóta.
Lissabon kemst á topp tíu en þangað ratar líka Aþena hin gríska og hér komast Frakkar á blað því borgin Lille er ein af tíu ódýrustu borgum Evrópu til heimsóknar og Strassborg rekur inn nefið líka. Munchen og Róm ekki langt undan. Ódýrustu spænsku borgirnar reynast vera Palma á Mallorca og Barselóna.
Af borgum Bretlands er hin sívinsæla Edinborg enn að skjóta London ref fyrir rass. Í skosku borginni er átta þúsund krónum ódýrara að njóta dagsins en í London.
Allt hjálpar þetta ef naumt er af fjármagni á bankabók. Ekki hvað síst sökum þess að okkur býðst þokkalega ódýrt að fljúga annaðhvort beint til margra þessara staða eða í næsta nágrenni.







