Það vita þeir sem þvælst hafa um suðurhluta Þýskalands að sumarlagi að óvíða er ljúfara að anda inn og út en þar um slóðir. En vissirðu að þangað getur verið helmingi ódýrara að komast með þýska flugfélaginu Germania en með arfagömlum rellum Icelandair?

Ekki sama með hverjum flogið er… Samsett mynd

Fjölskyldufaðir forvitnaðist um það fyrr í vikunni hvort hægt væri að komast langleiðina til Alpafjalla héðan í beinu flugi öðruvísi en með Icelandair til Munchen. Sá kom af Alpafjöllum þegar við bentum honum á að bóka umsvifalaust með þýska flugfélaginu Germania. Þeir fljúga nefninlega vikulega í sumar lóðbeint til hinnar þekktu borgar Nurnberg sem er aðeins rétt rúmlega klukkustund norðar en hin frábæra Munchen.

Hvers vegna Germania frekar en Icelandair?

Jú, vegna þess að lægsta verð AÐRA LEIÐ með Icelandair til Munchen í júlí kostaði fyrr í vikunni 26.435 krónur per haus á sardínufarrými með ekkert innifalið. Fargjald sama dag með Germania til Nurnberg á sardínufarrými kostaði heilar 12.590 krónur.

Það, góðir lesendur, er verðmunur upp á lítil 110 prósent!!! Sami verðmunur hlutfallslega sé ferðast með tösku.

Fjögurra manna fjölskylda kemst því aðra leið til Nurberg í júlí með Germania fyrir 50.360 krónur. Sama fjölskylda pungar út 105.740 krónum með Icelandair til Munchen.

Allt voða eðlilegt við slíkan verðmun…