Einhverjum gæti dottið í hug að hringja í barnaverndarnefnd ef foreldrar barns á þrjúbíó í Smáralind háma í sig popp og kók átta sætaröðum frá barninu meðan á sýningu stendur. En hjá Wow Air finnst fólki þetta hið eðlilegasta mál.
Það gengur seint og illa að koma hinum eðlilegustu hlutum á koppinn hjá Wow Air Skúla Mogensen. Lengi höfum við hér heyrt sögur af foreldrum sem bóka flug fyrir sig og börnin með flugfélaginu aðeins til að komast að því þegar í relluna er komið að allir sitja tvist og bast.
Eðli máls samkvæmt reyna flugþjónar oftast nær að bjarga málum nú eða að skilningsrík manneskja færir sig til að börn séu ekki fjarri foreldrum á flugi. En það er ekki hægt að ganga út frá því sem vísu nú þegar stór hluti flugfarþega bókar og greiðir fyrir sérstakt sæti í vélunum. Aðeins meira mál að gefa sætið sitt þegar þú pungaðir út fimm þúsund kalli fyrir það sérstaklega.
Einhver kann að benda á að barnafólk getur líka bókað sérstök sæti og þannig gengið úr skugga um að allir sitji saman. En það er bæði kostnaðarsamt auk þess sem þess á ekki að þurfa. Það eru til strangar reglur um að börn yngri en tólf ára næst foreldrum sínum og er einfalt öryggisatriði ef eitthvað gerist. Eða hver ætlar að setja súrefnisgrímu á sjö ára strák eða stelpu sem sitja ein aftast í vélinni meðan foreldri er fyrir miðju?
Wow Air fagnar brátt átta ára afmæli; er ekki tími til kominn að viðskiptavinir geti gengið að eðlilegum hlutum vísum á þeim bænum?







