Nýr dagur, fleiri aflýsingar. Forráðamönnum Icelandair virðist alls ómögulegt að halda rellum flugfélagsins á lofti samkvæmt áætlun. Verst kannski að þeir láta viðskiptavini sína aldrei vita af eður á. Toppeinkunn fyrir þjónustu (ekki).
Auðvitað vill flugfélag ekki að það fréttist að það aflýsir flugferðum oftar en Justin Bieber skiptir um kærustur. Það sleppur fyrir Bieber en ekki svo mikið fyrir flugfélag. Eða hversu margir tækju strætó úr Breiðholti ef ferðir leiðar tólf féllu niður sísona með reglulega millibili?
Allt á sömu bókina lært hjá Icelandair. Lofa fögru en veruleikinn er ljótur.
Sök sér að rellur bræði úr sér. Það á varla að koma á óvart hjá flugfélagi sem keyrir rellur sem voru framleiddar áður en Guns’N´Roses gaf út sína fyrstu smáskífu. Gallinn að flugfélagið lætur farþega ekkert vita og segir ekki stakt orð um aflýsingar á vef sínum. Þú bíður því bara og bíður og bíður eins og Gogo og Didi biðu eftir Godot.
Ráð að versla við aðra aðila til að vera viss um að komast á áfangastað á tilteknum tíma…







