Þetta á líklega aðeins erindi við fólk þarna úti sem elskar að brjótast út úr þægindarammanum og lifa lífinu lifandi.

Fólk í fátækari löndum heims er yfirleitt ekkert að drepast úr þunglyndi…
Eða hver heimsækir Dakar í Senegal í Afríku til að njóta lífsins unaðssemda?
Töluverður fjöldi fólks reyndar en yfirleitt aðeins fólk sem vill prófa nýja hluti og finnst gaman að lifa pínulítið utan við normið.
Heimsókn til Senegal er sannarlega eitthvað til að gorta sig af við ættingja og vini enda ekki toppáfangstaður ferðafólks í einu né neinu tilliti.
Það þýðir þó ekki að staðurinn sé tað og tremmi út í eitt. Þvert á móti, staðir sem ekki trekkja að hundruð þúsunda eða jafnvel milljónir árlega eru yfirleitt vel þess virði að heimsækja. Ekki til að gorta heimavið síðar heldur frekar til að upplifa land eða þjóð áður en fjöldatúrismi eyðileggur upplifunina. Eða haldiði að fólk sem heimsækir Ísland í dag sé að upplifa sömu dásemdir og þeir sem heimsóttu árið 1992?
Við minnumst á Senegal nú sökum þess að við rákumst á hreint makalaust tilboð á flugi til Dakar í Senegal og það frá Lúxemborg af öllum stöðum. Báðar leiðir, með stoppi í Lissabon í Portúgal, fyrir svo hlægilega lítið sem 37 þúsund krónur á ýmsum dagsetningum í september!!!
Tilboðin verða ekkert mikið stórkostlegri en þetta. Átján þúsund kall rúmur fyrir aðra leið frá Evrópu langt niður í Afríku og sama upphæð heim aftur. Kjörið fyrir ævintýragjarna þarna úti 🙂







