Gaman að þessum sérfræðingum öllum. Hálærðir út í eitt úr heimsins bestu skólum en gera samt reglulega feitari og alvarlegri mistök en Lithái með lyftarapróf eða húsvörður með heilahimnubólgu gætu gert á þúsund árum.

Sorrí Stína. Flott íslenskt nafn dugði ekki til fyrir forsvarsmenn Icelandair. Og flott erlent nafn virðist heldur ekki trekkja útlendinginn að ráði…
Icelandair hefur yfir nokkrum hundruðum „sérfræðingum” að ráða fyrir utan forstjórann sjálfan, sem veit sínu viti um síld og síldargöngur en ívið minna um kurteisi, vingjarnlegheit og heiðarleika. Og það verður að segjast að sjéffinn kann illa að ráða fólk sem veit sínu viti. Það er nefninlega ekki allt á bókina lært…
Brilljant dæmi um það er dúxinn úr HR sem datt í hug að breyta ágætu nafni Flugfélags Íslands í Air Iceland Connect fyrir rúmu ári síðan. Auðvitað alveg kjörið að henda flottu íslensku nafni fyrir róða til að taka upp orðskrípi úr ensku til að heilla alla þessa útlendinga með vasana troðna af seðlum.
Alas, ekki alveg.
Eitt af því fáa sem Icelandair, móðurfélag Air Iceland Connect, gerir þokkalega skammlaust er að birta ýmsar ágætar upplýsingar um reksturinn á vef sínum. Til dæmis tölur um farþegafjölda á tilteknum mánuðum hjá Icelandair annars vegar og Air Iceland Connect hins vegar. Þetta má finna hér.
Þar má meðal annars sjá að í júnímánuði 2016 var heildarfarþegafjöldi Flugfélags Íslands, svokölluð regional flights, alls 29.201. Farþegafjöldi í sama mánuði 2017, hálfum mánuði eftir að flugfélagið skipti um nafn reyndist vera 33.145 talsins. Góð ábót en tæplega því að þakka að flugfélagið skipti um nafn með skömmum fyrirvara tveimur vikum fyrr.
Ef allt væri eftir kokkabókum sérfræðinga þá ætti nýtt og sexí erlent nafn að heilla útlendinginn sem aldrei fyrr rétt rúmu ári eftir að það var tekið upp. Air Iceland Connect er jú auðvelt að skilja og það jafnvel þó flugfélagið hafi gert duglega í brók með utanlandsferðum til Stafangurs, Aberdeen og Belfast á liðnum árum.
En hver er reyndin? Jú, „regional” farþegum Icelandair Group fækkaði frá júní 2017 til júní 2018 um hvorki fleiri né færri en FJÖGUR ÞÚSUND OG EITT HUNDRAÐ OG KLINK.
Úpps!!!
Var Flugfélag Íslands virkilega að selja meira og betur en Air Iceland Connect?
Jebbs!
Og hverjum kemur það á óvart…







