Milljarðamæringurinn Skúli Mogensen vill meina að flugfélagið hans bjóði mest og best og lægst hingað og þangað um heiminn. Það er ekki svo.

Lægsta verð aðra leið til London með litlum fyrirvara finnst niður í rúmar fjögur þúsund krónur. Og það ekki hjá íslensku flugfélögunum.

Við kíktum á allra lægsta verð aðra leiðina til London sem hægt er að finna á vef Wow Air fimm mánuði fram í tímann. Sannarlega ekki dýr pakki á neinn mælikvarða því komist er langleiðina fyrir svo lítið sem 6.498 krónur lægst þegar þetta er skrifað og auðvitað á sardínufarrými með ekkert þyngra en tóbakspung eða venjulegan pung meðferðis.

Fyrir tíu árum síðan hefði slíkt fargjald þótt forsíðuefni íslenskra fjölmiðla enda ekkert annað í boði þá en Icelandair aðra leiðina fyrir 90 þúsund kall og þörf á að dvelja viku hið minnsta í ensku höfuðborginni.

Þeir dagar góðu heilli liðnir og nú þokkalega algengt að við getum skottast til Evrópu aðra leið frá tíu þúsund krónum eða svo.

Og vissulega hljómar lægsta verð Wow Air ekki illa fyrir blankan ferðaþyrstan Íslending. Tæp sex og fimm til London!!!

En hvað ef við bentum ykkur á að það er 33% dýrara en allra ódýrasta fargjaldið þá leiðina? Það ágæta fargjald, 4345 krónur með handtösku, er í boði gegnum ungverska flugfélagið Wizz Air og það með litlum sem engum fyrirvara. Það vita nefninlega ekki allir að Wizz Air hefur um nokkra hríð boðið landanum upp á beint flug til London…

Aukin samkeppni alltaf af hinu góða 🙂