Ótakmarkað golf, ótakmarkað áfengi, ótakmarkaður aðgangur. Jamm, við höfum flest látið heillast af auglýsingum frá ferðaþjónustuaðilum um ótakmarkað hitt og ótakmarkað þetta sem innifalið er í túrnum. Það er oftar en ekki tómt kjaftæði.

Öllum auglýsingum um ótakmarkað hitt og ótakmarkað þetta skal taka með tonni af salti.

Það eru margar leiðir reyndar til að freista ferðalanga þarna úti. Allir vilja jú fá bisnessinn og lofa þá gulli og grænum á móti. Stórfyrirtæki sérstaklega gera það svo nánast ómögulegt að hafa samband þegar ekki stenst allt eins og stafur á bók vitandi að flestir ósáttir einstaklingar gefast upp á endanum.

Innlend ferðaskrifstofa auglýsir til að mynda oft að um „ótakmarkað“ golf sé að ræða til tilteknum áfangastað. Með öðrum orðum að viðskiptavinur getur spilað eins mikið golf eins og hann eða hana lystir í ferðinni. En sama ferðaskrifstofa tiltekur einnig að „aukahringur“ kosti x mikið aukalega sem stangast dálítið á við loforðið um ótakmarkað golf ekki satt.

Annar aðili sem við þekkjum til greip flott tilboð Norwegian skipafélagsins um sex daga siglingu um karabíska með öllu inniföldu og þar með innifalið líka var „ótakmarkað” af áfengum drykkjum í ferðinni. Viðkomandi því töluvert súr einn daginn þegar hann nældi sér í drykk númer tíu og var tjáð að hún gæti ekki fengið meira áfengi á börum skipsins þann daginn. Í ljós kom að smáa letrið tiltók að „ótakmarkaða“ tilboðið tók enda við drykk númer tíu.

Svipað henti hjón sem eyddu tveimur vikum á lúxushóteli í Tyrklandi fyrir tæpu ári. Innifalið var „all you can eat all day“ eins og það var kallað á enskunni. Ekki aðeins var svo enginn matur af neinu tagi í boði milli klukkan 14 og 17 heldur fengu hjónin ákúrur frá hótelstjóranum þegar þau komu í áttunda skiptið að fylla á disk sinn.

Dæmin eru mýmörg en áður en fólk rífur hár sitt og skegg af bræði er ágætt að hafa í huga að það er hvorki hollt né sniðugt að ganga stanslaust í eitthvað einungis af því það er sagt „frítt“ eða hluti af pakkanum. Það er skiljanlegt að skipafélög vilji ekki hafa mökkölvað fólk á öllum þilförum ekkert síður en flugfélögin. Það skapar oft ónæði fyrir aðra og líka hættu fyrir þá sem ekki kunna sér hóf.

Né heldur er gert ráð fyrir að fólk geti ítrekað valsað inn í matsal á flottu hóteli rennblaut á sundbuxum og troðið kjúklingaleggjum og parmesan skinku á disk og haldið út á verönd á ný.

Þá segir sig sjálft, jafnvel þó auglýsingar tiltaki annað, að nema golfari sé aleinn á golfvelli allan liðlangan daginn er ekki nokkur leið fyrir ferðaþjónustuaðila að lofa ótakmörkuðu golfi. Það takmarkast vitaskuld af lausum teigtímum á vellinum og ferðaskrifstofa ræður engu um það.

Að þessu sögðu er klárt að fræðilega eru fyrirtæki á borð við þau sem við nefnum EKKI að standa við loforð. Viðskiptavinir eiga ekki að þurfa að stúdera 50 síður af smáu letri til að ganga úr skugga um að yfirlýsingar í auglýsingum standist þegar á hólminn er komið. En vitiborið fólk veit líka sem er að fyrirtæki flest ýkja og jafnvel ljúga í auglýsingum, hafa gert um áraraðir og munu gera um áraraðir. Trixið er að taka slíkum loforðum með sama salti og þú tekur yfirlýsingum stjórnmálamanna….