Einhverjir Íslendingar um borð í vélum Delta Airlines til og frá Keflavík mánudaginn 23. júlí? Þeir hinir sömu flugu ókeypis eða því sem næst.
Allar flugferðir hins bandaríska Delta á mánudaginn var voru seinar sem nemur tæpum fjórum klukkustundum bæði til landsins og frá aftur.
Fúlt að hanga í flugstöð með tveggja stunda fyrirvara en öllu verra þegar búið er að tékka sig inn og í ljós kemur að biðin verður töluvert lengri en ráð var gert fyrir. Sex stundir eða svo í tilfellum véla Delta til og frá New York og Minneapolis hafi fólk mætt sem góðum fyrirvara.
Góðu heilli gilda stífar reglur, ennþá, þess efnis að allir þeir aðilar sem fljúga til og frá Evrópu falla undir Evrópureglur hvað varðar bætur fyrir alvarlegar tafir á ferðalögum. Ergo: Delta skuldar hverjum og einum farþega sínum tæpar 500 evrur, 62 þúsund krónur eða svo, vegna tafa. Bæði flug frá New York og Minneapolis og flugin sömu leið til baka töfðust um vel rúmlega þrjár stundir en það er viðmiðið þegar bætur kikka inn fyrir ferðir.
Til að sækja sitt þarf að senda skeyti á flugfélagið og ef menn eru með vesen þar á bæ er næsta skref að hóa í Samgöngustofu. Með flugi til Evrópu gengst Delta undir reglur í Evrópu og þær kveða skýrt á um fínar bætur ef hangs í flugstöð fer fram úr hófi.







