Látum okkur nú sjá. Tugir kvartana yfir sama hlutnum á skömmum tíma en fyrirtækið heldur áfram að gera sömu mistök aftur og ítrekað. Hvað segir það um raunverulegan vilja til að bæta þjónustuna?
Ef marka má færslu á Twitter þennan daginn virðist herra Mogensen ekkert vera að reka á eftir sínu fólki að bæta hörmungarþjónustu Wow Air. Þvert á móti eiginlega.
Í þessu tilfelli er fjögurra manna fjölskylda að fljúga með Wow Air. Móðurinni neitað um far og þriggja ára og sjö ára börnum plantað víðs vegar í vélinni langt frá föður sínum. ÞRIGGJA OG SJÖ ÁRA!!!
Þetta er nánast viðbjóðsleg framkoma við viðskiptavini. Sé einhvern tímann kominn tími á Samgöngustofu að taka út Wow Air er það núna. Eða hversu lengi á íslenskt flugfélag að fá að selja sæti um borð og græða fúlgur fjár og á sama tíma aðskilja foreldra og börn aftur og ítrekað?
Slíkt fyrirtæki má setjast að í Litháen okkar vegna. Slík þjónusta á ekkert skylt við þjónustu eða virðingu við fólk.







