Kannski er ritstjórn Fararheill alein um þá skoðun en það getur ekki verið eðlilegt að hvorugt stóru flugfélaga geti ekki skilað fólki heim frá allra vinsælasta sumardvalarstað landans; Spáni, nema um miðjar nætur.
Athugun Fararheill leiðir í ljós að sumarið 2014 kemst enginn nema fuglinn fljúgandi heim frá Spáni nema löngu eftir miðnætti. Gildir þá einu hvort um er að ræða Wow Air eða Icelandair. Reyndar þýðir ekki að prófa þriðja flugfélagið sem ferðir býður milli Spánar og Íslands næsta sumar heldur. Spænska flugfélagið Vueling lendir líka vélum sínum frá Barcelóna vel eftir miðnætti.
Það eru ekki ýkja mörg ár síðan að áætlunarflug heim frá Spáni lenti undantekningarlítið á Keflavíkurflugvelli seinnipart dags eða snemma kvölds í versta falli. Það er heldur ekki mörg ár síðan engin evrópsk flugfélög voru með áætlunarvélar á lofti mjögs seint kvölds og hvað þá um miðjar nætur á flugi milli staða í Evrópu. Það þótti einfaldlega ekki boðlegt.
Það er enn ekki boðlegt en nú er öldin önnur og þar sem ódýrara er að brúka flugvelli seint um kvöld eða nætur nýta smærri flugfélög og lággjaldaflugfélög sér það út í æsar. Það gerir þeim líka kleift að nota vélar sínar oftar; bæði til morgunflugs og heim og svo síðdegisflugs og heim. Fínn bissness og tvöfaldar tekjur flugfélagsins sem er auðvitað er gerður góður rómur að á næsta hluthafafundi.
En hvað varð um þjónustuna? Hvað varð um virðinguna fyrir viðskiptavininum? Og hvers vegna eru flugfargjöld ekki mun lægri þegar flogið er seint um kvöld eða nætur? Lesendur mega velta þeim spurningum fyrir sér.
Í öllu falli er það EKKI góður endir á fínni afslappandi sumarleyfisferð að vekja börnin um tvö eftir miðnætti þegar lent er í Keflavík, staulast með stírur í augum gegnum Leifsstöð og aka heim og geta lagt börnin og sjálfan sig til svefns milli fjögur um fimm um nóttina. Allur dagurinn meira og minna farinn í vaskinn þegar fólk vaknar um hádegið.
Það er EKKI góður endir á fínni afslappandi sumarleyfisferð að þurfa að ganga frá töskum og skila herbergi á hótelinu um hádegisbil og finna svo leið til að hafa ofan af fyrir börnunum klukkustundum saman vegna þess að vélin fer ekki í loftið fyrr en skömmu fyrir miðnætti.
Fyrir utan þá augljósu staðreynd að mun færri hendur eru reiðubúnar til aðstoðar ef eitthvað alvarlegt bjátar á í fluginu um miðja nótt en miðjan dag. Nauðlending á sjó í dagsljósi er ekki ýkja spennandi tilhugsun en ólíkt vænlegri en nauðlending í myrkri.
En um þetta höfum við einfaldlega ekkert val sumarið 2014.
[polldaddy poll=“6683169″]Dæmisögur hér að neðan:














