Það er margt í þessari veröld sem ritstjórn Fararheill skilur ekki upp né niður í. Eitt af því eru jólagjafabréf á borð við það sem Wow Air er að bjóða fólki.

Gáfulegra að pakka peningum í jólapappír en kaupa jólagjafabréf Wow Air

Gáfulegra að pakka peningum í jólapappír en kaupa jólagjafabréf Wow Air

Það sem við skiljum ekki er að með jólagjafabréfum Wow Air er ágóði kaupanda eða þiggjandans ENGINN.

Eiginlega er hann verri en enginn því í stað þess að gefa til dæmis tíu þúsund krónur í peningum sem viðtakandi getur notað hvernig og hvenær sem er rennur tíu þúsund króna gjafabréf Wow Air úr gildi eftir eitt ár. Þiggjandi sem ekki finnur tíma eða vilja til að fljúga með Wow Air næsta árið tapar tíu þúsund krónum. Ekkert WOW við það.

Kaupandi hefur ekki einn einasta hag af kaupum á gjafabréfum sem ekki veita neitt aukalega. Ólíkt til dæmis jólagjafabréfum Icelandair, sem ekki eru merkileg heldur, þá að minnsta kosti er fólk að tryggja sér ferðir á tiltekinn áfangastað á ákveðnu tilboðsverði sem er aðeins lægra en gengur og gerist. Þá þarf kaupandi þess bréfs ekki að greiða neitt aukalega þó flugfargjöld hækki á næsta ári. Hann fer sína ferð á sínu jólagjafaverði.

Ekki svo hjá Wow Air. Það er ekki einu sinni hægt að nota gjafabréfin upp í ferð með ferðaskrifstofu Wow Air. Þá er ekki hægt að skila þeim heldur og fá endurgreitt. Eini möguleikinn er að selja bréfið.

Með tíu þúsund krónur í peningum kaupir fólk hins vegar þá ferð sem það vill, seðlarnir verða ekki verðlausir eftir eitt ár og enginn þarf að bera sig eftir endurgreiðslu eða eyða tíma að selja þá. Ólíkt betri leið að mati Fararheill.

Tekið skal fram að Wow Air er fjarri því eina fyrirtækið sem selur gjafabréf sem færa hvorki kaupanda né þiggjanda neinn ágóða umfram venjulega peninga.