Opinn og frjáls markaður er hið allra besta mál að mati flestra þeirra sem ekki sjá skóginn fyrir trjánum og hugsa ekki lengra en viku fram á veg. Allavega þangað til samkeppnin verður of mikil eða hörð.

Lok, lok og læs. Risaflugfélögin vestanhafs vilja minni samkeppni.

Lok, lok og læs. Risaflugfélögin vestanhafs vilja minni samkeppni.

Stórfréttir berast frá Bandaríkjunum en New York Times greinir frá því að stærstu flugfélög Bandaríkjanna, United, Delta og American, vilji nú að stjórnvöld þar í landi endurskoði svokallað Open skies samkomulag sem er grunnurinn að samkeppni í flugi um heim allan. Eingöngu flugfélög hvers þjóðir hafa aðild að þeim samningi geta flogið nokkuð að vild milli landa og borga eins og þeim hentar.

Öll stóru flugfélögin sem hér um ræðir hafa um áratugaskeið barist fyrir Open skies og hvatt stjórnvöld til að fjölga samningum ótt og títt en þess má geta að Ísland og Noregur urðu fullgildir aðilar árið 2011.

En nú er skipt kyrfilega um kúrs. Flugfélögin þrjú vilja nú takmarkanir á Open skies samningum Bandaríkjanna og ástæðan er mikill uppgangur þriggja flugfélaga frá Mið-Austurlöndum. United, Delta og American eru lafhrædd við ótrúlegan uppgang flugfélanna Qatar, Emirates og Ethidad.

Öll þrjú hafa náð frábærum árangri undanfarin ár og gjörbreytt landslagi flugs á heimsvísu velflestum neytendum til hagsbóta. Þó hafa önnur flugfélög orðið undir líka og nægir þar að nefna allmörg evrópsk flugfélög sem sum hver eru nú beinlínis á framfæri Ethidad, Qatar eða Emirates. Alitalia og Airberlin tvö dæmi um það.

Kvartanir bandarísku flugfélaganna varða óeðlilega samkeppni og þar bent á að flugfélögin þrjú frá Mið-Austurlöndum njóta öll mikilla ríkisstyrkja. Þetta eru sömu kvartanir og evrópsk flugfélög hafa haldið á lofti lengi án þess þó að kalla eftir takmörkunum á flugfrelsi eins og þau bandarísku vilja.

Þessi rök halda litlu vatni. Velflest flugfélög heims hafa notið eða njóta ríkisstyrkja í einhverri mynd og þar með talin Delta, American og United. Þess utan væri aldrei hægt að takmarka aðeins flug Emirates, Qatar og Ethidad. Það yrði yfir línuna ef til þess kæmi.

Nær lagi er að bæta þjónustu, endurnýja vélar og gera flug að yndislegum ferðamáta aftur og trekkja þannig aftur að viðskiptavini sem heillast meira af Qatar, Emirates eða Ethidad. Því öll hafa þau orð á sér fyrir framúrskarandi þjónustu og Fararheill tekur heils hugar undir það og við flogið með tveimur af fyrrtöldum flugfélögum. Farþegar þessara flugfélaga fá toppþjónustu og gildir þá einu hvort um er að ræða fyrsta farrými eða almennings farrýmið. Almennings farrýmið er ekkert sardínufarrými þar sem krampi kemur í fót á fimm mínútum, þjónusta öll frábær fram í fingurgóma, matur fyrirtak miðað við flugvélamat, topp afþreyingakerfi, netaðgangur og ekki margt um borð kostar neitt aukalega. Sama gildir fyrir flug og eftir flug. Ekkert þessara flugfélaga er á topplistum yfir þau flugfélög sem fara í hart gegn öllum þeim sem krefjast bóta vegna aflýsingar, seinkunar eða annarra vandamála. Þau eru bara leyst og það sem allra fyrst.

Sem er ekki beint það sem hægt er að lesa um þjónustu Delta, American eða United. Öll þrjú eru í besta falli miðlungsgóð.

En hvað vitum við? Kannski er ráðið að takmarka allt á nýjan leik svo fargjöld geti nú aftur hækkað um helming án þess að neytendur fái rönd við reist.