Tvær vikur undir sólbjörtum himni á Kanarí á sæmilegu hóteli með mat og drykk innifalið undir tvö hundruð þúsund á mann miðað við tvo saman. Ýmislegt verra en það.

Enska ströndin mun alltaf heilla kaldan Íslendinginn og lágt verð líka. Mynd Anne Roberts
Þannig hljómar tilboð sem ferðaskrifstofan Heimsferðir er að bjóða þessa stundina en þar á bæ selja menn nú sín síðustu sæti til Kanarí þennan veturinn á tilboðsverði.
Um er að ræða bæði ferðir til Tenerife og Kanarí og hægt að finna pakka niður í 125 þúsund á mann í viku ef ekkert er innifalið og svo aftur tvær vikur með öllu á 189.900 krónur.
Gróflega er þetta svona 30 til 60 þúsund króna lækkun frá venjulegu verði á sams konar ferðum. Sem er ekkert til að kvarta yfir.







