Við vitum ekki um ykkur en það er töluvert óþolandi í ókunnri borg eða á ókunnu svæði að geta alls ekki komist í netsamband með snjallsíma eða fartölvu eða þurfa að greiða fyrir fúlgur fjár.

Netsamband í miðborg Ankara í Tyrklandi er ekki áberandi gott eða traust en engar áhyggjur ef fylgt er leiðbeiningum.

Netsamband í miðborg Ankara í Tyrklandi er ekki áberandi gott eða traust en engar áhyggjur ef fylgt er leiðbeiningum.

Það kemur stundum fyrir að fólk vill vita hvert það er að fara á rápinu um erlendar stórborgir eða svæði. Oftast nær er hægt að reiða sig á snjallsíma eða spjaldtölvur sé fólk með slíkt til að kíkja á borgarkort google, Nokia eða annarra kortagerða og finna allt sem þarf á augabragði eða svo.

En að vera nettengdur í símann eða tölvuna á erlendri grund getur kostað morð fjár bókstaflega og það er súrt að þurfa að greiða miklar upphæðir fyrir stöku innlit á googlemaps. Vissulega er stundum hægt að finna svokallaða heita reiti með fríum netaðgangi en ekki gefið.

Þjóðráð til að spara feita seðla en geta samt komist í kort þegar á þarf að halda hvar sem er og hvenær sem á þarf að halda er að beita smá trixi sem ekki margir vita um en tæknispekingar Wired hafa fjallað um.

Áður en lagt er í hann til dæmis í ákveðinn ókunnan borgarhluta og menn enn í netsambandi er hægt að fara á googlemaps, finna þann stað eða hverfi sem þvælast skal um og þegar það er komið slá inn „OK Maps“ í leitargluggann (ekki með gæsalöppum samt).  Sé allt eðlilegt hefst google handa við að hlaða niður því korti sem þú hefur afmarkað. Á nokkrum sekúndum ættu að birtast skilaboð þess efnis að „the on-screen map has been cached.“

Á mannamáli ertu búin að hlaða þessu ákveðna korti niður í símann eða tölvuna og hefur aðgang að kortinu, með zúmmi og öllum möguleikum innan rammans, jafnvel þó ekkert sé netsambandið. Auðvitað er hægt að taka líka skjáskot af því korti sem um ræðir en í því tilfelli er ekki hægt að hreyfa kortið eða fá nærmynd af næstu götum og svo framvegis.