Borgaryfirvöld í Napolí á Ítalíu hafa ítrekað að engir ferðamenn ættu að vera þar á ferðinni með skart af neinu tagi. Var birt ítrekun um slíkt eftir að þjófar réðust svo harkalega á ferðamann að hann lést af áverkum sínum.

Falleg en varasöm er Napolí á Ítalíu. Mynd MorBCN
Segir AP fréttastofan frá árásinni sem átti sér stað nánast um leið og ferðamaðurinn steig á bryggju í Napolí en hann var á ferð með skemmtiferðaskipi sem stoppaði hálfan dag í borginni. Hópaðist að honum hópur manna sem heimtaði veski hans, gullúr og annað skart en maðurinn þráaðist við með þeim afleiðingum að hann féll illa á höfuðið. Lést hann nokkru síðar.
Napolí er ein allra versta glæpaborg á Ítalíu og reyndar í Evrópu og er þá ekki tekið tillit til mafíustarfsemi sem þar þrífst enn þann dag í dag.
Brugðu borgaryfirvöld á það ráð fyrir nokkrum árum síðan að ráða endurhæfða glæpamenn til að aðstoða ferðamenn í borginni og brýna fyrir fólki að sýna ekki peninga eða skart eða annað það sem heillað gæti þjófa.







