Hjálpið okkur að rifja upp skólabókarstærðfræðina. Er ekki örugglega sjö þúsund króna munur á 9.999 og 16.999?

Írska höfuðborgin er alls ekki í boði frá 9.999 í allt sumar eins og gefið er í skyn. Skjáskot

Írska höfuðborgin er alls ekki í boði frá 9.999 í allt sumar eins og gefið er í skyn. Skjáskot

Seinni talan er lægsta verð sem finnst aðra leiðina án bókunargjalds og farangurs með flugfélaginu Wow Air til Dublin á Írlandi í júní og júlí þegar þetta er skrifað. Á sömu stundu er fyrirtækið þó að auglýsa ferðir til Dublin í júní, júlí og ágúst frá 9.999 krónum.

Það virðist vera orðin lenska hjá flugfélagi ríkasta manns Íslands að ýkja um hitt og þetta eins og Fararheill hefur ítrekað bent á. Ýkja er fallegt orð yfir plat, svik, pretti eða beina lygi. Hverju nafni sem það kallast er þetta ólöglegt. Það stríðir gegn lögum um neytendavernd að auglýsa verð á vöru sem ekki stenst.

Skyldi einhver lögfræðingur Wow Air hugsa okkur slæmt til glóðar hendum við glöð með skjáskotum af bókunarvél Wow Air í júní, júlí og ágúst. Aðeins í ágústmánuði finnst flug aðra leiðina niður í 9.999 krónur og jafnvel það verð er ekki rétt því ofan á það bætist bókunargjald að upphæð 999 krónur.

Skemmtileg framkoma við neytendur í landinu.

dub7

dub8

dub9