Allur er varinn góður á markvörður handboltalandsliðsins að hafa sagt hér á árum áður og það máltæki mættu áhugasamir um ferð til Myanmar, áður Búrma, hafa í huga.

Óspennandi tilhugsun að smitast af ólæknandi malaríu. Mynd Jose Javier Martin
Þar hefur nú verið staðfest afbrigði af malaríu hvers sýklar eru nánast með öllu ónæmir gegn bestu lyfjum. Greint er frá málinu í vísindaritinu The Lancet í Bretlandi. Fréttirnar afar alvarlegar enda hafa vísindamenn óttast slíkt um langa hríð en lengi hefur verið vitað af síauknu lyfjaþoli afbrigða hér og þar í heiminum.
Það eru moskítóflugur sem bera sjúkdóminn til manna og það bit getur í verstu tilfellum dregið fólk til dauða. Þannig er talið að milli ein og þrjár milljónir fólks deyi úr malaríu árlega þó oftar takist að hefta og lækna sjúkdóminn með vestrænum lyfjum.
Með tilliti til nálægðar Myanmar til fjölmennra nágrannaþjóða segja vísindamenn það gríðarlega mikilvægt að það takist að hefta útbreiðslu þessa afbrigðis malaríu. Ellegar er voðinn vís.







