Það er kannski ekki svo góð hugmynd að ferðast með ferðaskrifstofu sem heldur því blákalt fram að rómverska heimsveldið sé enn við lýði.

Það er nú eiginlega lágmark þegar fólk er að greiða stórfé fyrir ferðir að veittar sé upplýsingar sem mark er á takandi.
Heimsferðir auglýsa túra til Rómarborgar í fjölmiðlum þessi dægrin. Ekkert nema gott um það að segja enda Róm ljúf heimsóknar að vorlagi.
En steypan sem vellur fram bæði í auglýsingum þeirra og ekki síður á heimasíðu ferðaskrifstofunnar er svo gríðarleg að BM Vallá er að íhuga að gera tilboð.
Dæmi um það má sjá á skjáskotinu hér að neðan sem ætti að tilheyra prógrammi hjá uppistandara en ekki ferðalýsingu hjá stórri ferðaskrifstofu.
Þar má til dæmis sjá að rómverska heimsveldið er enn við lýði og að Róm er vagga trúarbragða og þar er geysivinsæll gosbrunnur sem heitir Fountain.

Megum við leyfa okkur að gefa þér töluvert betri innsýn í vegvísi Fararheill um Róm. Svo er sjálfsagt að finna gistingu á lágmarksverði ef ferðinni er heitið þangað.







