Rúmlega helmings verðmunur reynist vera á flugferðum með Wizz Air annars vegar til Gdansk í Póllandi og Wow Air hins vegar til Varsjár í sama landi.

Enn eitt flugfélagið í flóruna hérlendis. Góður tími í hönd.
Hið ungverska Wizz Air tilkynnti formlega í dag að félagið hæfi áætlunarferðir milli Keflavíkur og Gdansk en flogið verður tvisvar í viku hverri í allt sumar.
Þetta eru gleðifréttir fyrir ferðaþyrsta. Fleiri möguleikar og meiri samkeppni og veitir ekki af. Sé mið tekið af stöðunni á bókunarvél Wow Air til Varsjár í sumar er vandfundið flug báðar leiðir mikið undir 60 þúsund krónum. Sem er fráleitt verð hjá flugfélagi sem kallar sig lágfargjaldaflugfélag og til samanburðar er komist með Wizz Air þegar þetta er skrifað fram og aftur kringum 30 og 40 þúsund krónur. Í hvorugum tilvikum er innritaður farangur innifalinn.
Fararheill hefur eytt tíma í báðum borgum og báðar fá fína einkunn. Gdansk kemur flestum mjög á óvart í jákvæðu tilliti og ekki eru strendur hér í grennd lélegri en margar suðrænni strendur yfir hásumarið. Lesa má allt um Gdansk í vegvísi Fararheill hér og um Varsjá í vegvísi okkar hér. Svo er verðlag í báðum borgum hið besta fyrir íslensk veski og auðvitað gisting á lágmarksverði líka.
Vefur Wizz Air hér.







