Sök sér að flytja starfsemi sína alfarið frá Íslandinu góða en Primera Air hefði nú getað staðið betur að því að loka innlendri bókunarsíðu sinni. Google varar eindregið við för þar inn.

Þeir sem vanir eru að bóka flug og ferðir á íslenskum bókunarvef Primera Air fá nú viðvörun áður en farið er þangað inn. Skjáskot
Eins og vel lesnum er kunnugt flutti Primera Air flugrekstur sinn frá Íslandi í vetur en Primera er rekið af Andra Ingólfssyni og félögum og er ferðaskrifstofan Heimsferðir eitt púslið í þeim rekstri.
Primera Air flýgur einmitt töluvert fyrir Heimsferðir og lengi vel hefur verið hægt að bóka aðeins flug með flugfélaginu líka.
Það er ennþá hægt en ekki gegnum hina venjulegu heimasíðu Primera. Nú þurfa áhugasamir að varast för þar inn samkvæmt Google eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti. Nú þurfa ferðaþyrstir að halda á vefinn Primeraair.com til að bóka nokkurn hlut í stað Primeraair.is eins og áður var.
Hefði ekki verið dálítið góð hugmynd og góð þjónusta og vísa fólki áfram á nýju síðuna af þeirri gömlu í stað þess að loka henni fyrirvaralaust?







