Það er nú með því helvítlegra sem nokkur sála getur upplifað á sólarströnd að vanheill, heilaþveginn og vopnaður öfgamaður valsi um svæðið og skjóti mann og annan sísona eins og gerðist í borginni Sousse í Túnis um helgina með hræðilegum afleiðingum.

Það er góð ástæða til að heimsækja Sousse. Strendur borgarinnar fyrsta flokks. Mynd Ivan
38 létust í skotárásinni við lúxushótelið á strönd Sousse sem er með vinsælli áfangastöðum erlendra ferðamanna í landinu en ferðamennska er einn allra stærsti atvinnuvegurinn í þessu fátæka landi.
En eins og Fararheill fjallaði um hér í mars þegar aðrir vitfirrtir öfgamenn skutu niður gesti og gangandi á frægu safni í Túnisborg, er ekki nokkur leið fyrir neina þjóð eða leyniþjónustu neinnar þjóðar að koma í veg fyrir hryðjuverk af þessu tagi þar sem einn, tveir eða fáir einstaklingar taka sig til og hefja skotárás á almenningsstað upp úr þurru.
Stjórnvöld í Túnis reyndu sitt besta í kjölfarið enda túrisminn mikilvæg tekjulind. Það voru vopnaðir lögreglumenn víða í borginni og sérstakt eftirlit við helstu hótel útlendinga og þar á meðal það hótel þar sem árásin var gerð. Svo mikil var gæslan reyndar að gestir kvörtuðu enda erfiðara að slappa af á sólarströnd umkringd vopnuðum vörðum.
Okkur grunaði að árásin í Túnisborg yrði ekki sú síðasta gegn erlendum ferðamönnum í landinu og það kom á daginn. Best að halda sig vel fjarri Túnis næstu árin.







