Okkur leiðist mikið þegar stórfyrirtæki virða lög og reglur að vettugi og komast upp með það vandræðalaust. En nú hefur Icelandair aðeins tekið til í ranni.

Lágmarksþjónusta hjá Icelandair að blekkja ekki neytendur. Skjáskot
Við bentum áhugasömum á fyrir skömmu síðan að flugfélagið hefði, meðal annars, auglýst flugferðir undir heitinu hraðtilboð til Boston, New York og Toronto niður í 14.900 krónur. Ekkert var þó flug í boði til þessara áfangastaða á því verði.
Það vill nefninlega svo til að auglýst verð skal standast lögum samkvæmt enda annars vita vonlaust fyrir neytendur að vita hvað snýr upp og hvað niður hjá fyrirtækjum. Með öðrum orðum, áttu áhugasamir að geta fundið flug aðra leið til þessara þriggja áfangastaða vestanhafs fyrir 14.900 þegar tilboðið var auglýst.
Hvort forráðamenn hafa tekið það til sín eða ekki þá er allt annað og betra að skoða hraðtilboð Icelandair nú. Þar er nú skýrt tekið fram annars vegar lægsta fáanlega verð á flugi til Evrópu og svo hins vegar lægsta verð á flugi til Norður Ameríku.
Við myndum klappa fyrir framtakinu ef það væri ekki algjört lágmark og því látum við það vera.







