
Þessi er ágæt heimsóknar í flestu tilliti. Gautaborg lumar á einu og öðru spennandi
Flugfélagið Play, hvers forstjóri og stjórnarmaður eru undir rannsókn vegna skattsvika, býður landanum nú upp á beint flug til þriggja áfangastaða í Noregi og Svíþjóð: Gautaborg, Stafangurs og Þrándheims.
Gott og blessað með það. Óvitlausir staðir per se ef hugmyndin er að freista Norðmanna eða Svía til að bóka til Íslands. Mjög vitlausir staðir sé ætlunin að freista Íslendinga.
En Norðmenn og Svíar eru töluvert fjölmennari en Íslendingar og því gætu þessir staðir gert sig fjárhagslega fyrir Play burtséð frá hvort Íslendingurinn hefur áhuga.
Þessir áfangastaðir í boði næsta sumarið og til Stafangurs komist aðra leið fyrir 12.400 krónur á mann á lægsta fargjaldi. Ódýrasta fargjaldið aðra leið til Gautaborgar húrrar í fimmtán þúsund krónur og allra lægsta fargjald til Þrándheims slefar í þrettán þúsund krónur þegar þetta er skrifað.
Sem sagt; ekkert ódýrara en flug til Þýskalands, Frakklands og jafnvel Spánar fyrir okkur Íslendinga með góðum fyrirvara. Ekki svo að skilja að Stafangur, Þrándheimur né Gautaborg séu leiðinlegir áfangastaðir. Hreint ekki, nema Stafangur, en enginn er að ferðast þær leiðirnar næsta sumar nema eiga familíu á þeim slóðum.







