Allt stefnir nú í að sá ótti ferðaþjónustuaðila að Ólympíuleikarnir í London í sumar verði algjört flopp verði að veruleika. Nýjustu tölur sýna 95 prósent fækkun bókana til borgarinnar þann tíma sem leikarnir standa yfir.

Allt að verða klappað og klárt í London fyrir Ólympíuleikana sem þar fara fram. En kannski verða þar öllu færri ferðamenn en vonir standa til
Samtök ferðaþjónustuaðila í London hafa harðlega gagnrýnt lengi að leikarnir yrði haldnir í borginni og fært þau rök fyrir að það setji almenna ferðaþjónustu, sem gengið hafi verl, í algjört uppnám.
Ekki síst sé dapurlegt að London sé og hafi verið lengi einn allra vinsælasti áfangastaður ferðamanna á heimsvísu en að leikarnir og lætin og kostnaður kringum þá hrekji burtu þá sem annars hefðu lagt leið sína til borgarinnar. Ekki síður vegur þungt að rannsóknir sýna að ferðafólk sem kemur sérstaklega útaf stórum íþróttaviðburðum haga sér ekki eins og venjubundnir ferðamenn. Þeir sæki lítið í verslanir, leikhús eða aðra afþreyingu og því njóti þeir hagsmunaaðilar alls ekki góðs af.
Nú, um fimm mánuðum áður en Ólympíuleikarnir verða settir eru 95 prósent færri bókarnir hjá ferðaþjónustu- og afþreyingaraðilum í London en venja er í júlí og ágúst. Ástæðurnar nákvæmlega þær sem ferðaþjónustaðilar hafa haldið fram en ekki síður að hóteleigendur í borginni, með væntingar um troðfull hótel sín þann tíma sem leikarnir standa, hafa hækkað verð á gistingu umtalsvert og það hrekur enn frekar frá.
Tímaritið Global Travel News fjallar um þetta og ræðir við nokkra af stærri ferðaþjónustuaðilum í borginni. Allir hafa þeir gert ráðstafanir gagnvart minnkandi sölu ferða og sumir gengið svo langt að aflýsa öllum túrum um London í júlí og ágúst.
Ritstjórn Fararheill hefur lengi verið á þeirri skoðun að heimsókn til London í júlí eða ágúst sé ekki góð hugmynd og nýleg vefkönnun leiðir í ljós að fjölmargir lesendur eru á sama máli. London er ekki málið þetta sumarið.






