Tíðindi

Köben og Berlín á tilboðsverði

  22/02/2012desember 24th, 2013No Comments

Árið byrjar vel fyrir íslenska neytendur og ferðaþyrsta. Sjaldan eða aldrei hefur verið jafn mikið auglýst af sérstökum tilboðsferðum hjá flugfélögunum og síðustu dægrin en Fararheill telst til að öll flugfélögin hafi boðið sértilboð síðustu sjö dagana.

Nú auglýsir Iceland Express sértilboð í hálfan sólarhring til Kaupmannahafnar og Berlínar. Til Köben er komist fyrir 11.900 aðra leiðina en Berlínar fyrir 13.900 krónur. Bóka þarf tilboðin fyrir miðnætti í kvöld 22. febrúar.

Er þokkalega súrrealískt að koma auga á flugfargjald á 120 krónur (sjá mynd) til Kaupmannahafnar en vitaskuld má ekki gleyma að Iceland Express leggur á sérstakt öryggis- og eldsneytisgjald sem bætir 8.400 krónum við kostnaðinn. Restin eru skattar og gjöld.

Er það reyndar galli á ekki er ljóst þegar bóka skal hvenær allra ódýrustu ferðirnar eru í boði. Verður að gera leit á vef ferðasalans sem kostar viðskiptavininn tíma og mögulega peninga líka. Betur má gera þar að mati ritstjórnar Fararheill.

Heimasíða Iceland Express hér.