Þann fjórtánda janúar síðastliðinn auglýsti Wow Air tilboðskjör til fjögurra borga í sumar og þar á meðal til Barcelóna. Miðaverð aðra leiðina 18.800 krónur með bókunargjaldi og því komist fram og aftur fyrir 37.600 krónur plús þá sex þúsund krónur fyrir eina tösku hvora leið. Langi fólk allt í einu núna að drífa sig á staðinn finnst ekkert flug með Wow undir 66 þúsund eða 72 þúsund með tösku meðferðis.
Það er drjúgur munur svo ekki sé meira sagt en síðustu ferðir Wow til Barcelóna þetta árið eru í lok næsta mánaðar og hjá Wow vita menn mætavel að aukinn áhugi er á ferðum á sólarslóðir í lok sumars eða byrjun hausts vegna rysjóttrar tíðar hér heima. Það eru því afar litlar líkur að verð lækki úr þessu.
Sömu sögu er að segja um Icelandair sem reyndar hættir ekki að fljúga til Barcelóna í haust. Verð báðar leiðir hjá þeim frameftir vetri fást, sýnist okkur, ekki undir 103 þúsundum króna á mann þegar þetta er skrifað. Icelandair hefur þó ekki allt þetta ár boðið nein sérstök tilboð á ferðum þangað og jafnvel í janúar fundust ekki ódýrari flugmiðar báðar leiðir þetta haustið en á rúmlega 98 þúsund krónur.
Þannig hefur sá sem sá sæng sína útbreidda strax í janúar og keypti miða fyrir fjögurra manna fjölskyldu sína á tilboði hjá Wow greitt fyrir það 172 þúsund krónur. Sðili sem langar með fjölskylduna nú strax í næsta mánuði og vill ekki bíða þarf að borga 288 þúsund fyrir herlegheitin.
Fyrirhyggja telur.







