Toronto

Ein véla Porter Airlines í Toronto. Nýr samstarfssamningur Icelandair við flugfélagið færir okkur ekkert sérstakt

Í vikunni tilkynnti Icelandair um samstarfsamning sinn við kanadíska flugfélagið Porter Airlines sem flýgur milli ýmissa staða í austurhluta Kanada auk nokkurra áfangastaða  í Bandaríkjunum.

Skoðun Fararheill leiðir í ljós að á þessu er lítið að græða fyrir Íslendinginn.

Víst er ekki slæmt að geta bókað flugfar gegnum Icelandair alla leið til Québec eða Chicago gegnum Toronto svo dæmi sé tekið en það eru tveir af áfangastöðum Porter. Það hefur líka í för með sér að ekki þarf að druslast með töskur við millilendingu heldur þær bókaðar alla leiðina.

En verðlagning Porter er ekki til þess fallin að það kalli á húrrahróp og að frátöldum borgunum Montréal, Québec, Ottawa, Windsor eða Halifax er fátt annað sem er par merkilegt í boði með Porter.

Ekki er einu sinni hægt að spara skilding til Boston, New York eða Washington D.C. ef verð hjá Icelandair er í hámarki með því að finna ódýrt fargjald til Toronto og fljúga þaðan með Porter. Því þegar upp er staðið er verðið svipað og hver hefur áhuga að millilenda ef ekki er hægt að njóta þess peningalega.

Nei, okkur sýnist þessi samningur alfarið beinast að Kanadamönnum til að auðvelda þeim að komast hingað til lands. Nánar um áfangastaði Porter hér.