Halda mætti að gæðastjóri Icelandair sé að dóla sér í sumarfríi. Auglýst lágmarksverð aðra leiðina til Osló í Noregi á vef flugfélagsins er 19.800 krónur með sköttum og gjöldum. Það er bara ekki alls kostar rétt.

Þetta er besta verð Icelandair á flugi til Osló samkvæmt forsíðu fyrirtækisins. En er það samt ekki.

Þetta er besta verð Icelandair á flugi til Osló samkvæmt forsíðu fyrirtækisins. En er það samt ekki.

Ekki þarf lengi að leita að flugi aðra leið til höfuðborgar Noregs til að rekast á það sem flokkað er sem Economy Class Special fargjald. Á slíku fargjaldi er komist til Noregs fyrir 16.780 krónur.

Verð á bókunarvél flugfélagsins tekur örum breytingum en þegar þetta er skrifað má finna slík „Class Special“ fargjöld frá 21. september og langt fram í október.

Því miður sýnir flugfélagið viðskiptavinum sínum ekki þá lágmarks kurteisi að tiltaka þá daga sem svokölluð bestu verð ná yfir. Þess vegna verða áhugasamir að eyða tíma sjálfir og leita.

Enn ríkari ástæða er til þess nú þegar ljóst er að auglýst bestu verð eru ekki endilega bestu verð þegar allt kemur til alls.

Hér að neðan má sjá skjáskot af bókunarvél Icelandair þar sem glögglega má sjá að fjöldi ferða eru ódýrari en upp er gefið á forsíðunni og í auglýsingum fyrirtækisins. Annaðhvort mistök eða feimni en í öllu falli undarlegt.

Hvað eiga menn að halda þegar lægstu fargjöld Icelandair eru enn lægri en auglýst lægsta verð?

Hvað eiga menn að halda þegar lægstu fargjöld Icelandair eru enn lægri en auglýst lægsta verð?