Systurfyrirtæki Úrval Útsýn, Plúsferðir, halda nú upp á svokallaðan sólarsprett sinn enn einu sinni en þá lækkar ferðaskrifstofan lítillega verð á sínum ódýrustu ferðum næstu vikurnar.
Lítið er eftir af sumri á Fróni og tíðin verið leiðinlega rysjótt að margra mati sem hefur undir venjulegum kringumstæðum strax áhrif á sölu utanlandsferða til hins betra. Sökum þess er skringilegt að Plúsferðir veiti afslætti nú en allar tilboðsferðirnar miðast við ferðir eftir rúma viku. Þó aðeins skringilegt ef salan hefur verið góð en væntanlega er því ekki til að heilsa í þessum tilfellum.
Eins og Fararheill hefur áður gagnrýnt hjá Plúsferðum er bara kjánalegt að auglýsa tilboðsverð og miða þau aðeins við fjögurra manna fjölskyldur. Það er nefninlega svo, séu allir barnlausir sem hjá Plúsferðum starfa, að skólar landsins eru að langmestu leyti teknir til starfa þegar flogið er af stað í sólina í Almería eða á Tenerife. Þær eru væntanlega ekki margar fjölskyldurnar sem vilja að börn sín missi af fyrstu skóladögunum nýrrar annar.
Það sýnir sig líka á bókunarvél Plúsferða þegar þetta er skrifað, fjórum stundum eftir að opnað var fyrir með pompi, prakt og auglýsingum, að nóg er eftir af sætum bæði til Almería og Tenerife á umræddum tilboðsdögum.
Það verður þó að gefa ferðaskrifstofunni Plúsferðum plús fyrir að bjóða upp á „hált fæði“ í einni ferð sinni samkvæmt auglýsingu í Fréttablaðinu. Sem líklega er fljótandi fæði og því kjörið fyrir sjúklinga. Eða kannski aðeins drykkir í boði? En auðvitað er þarna um meinlega villu að ræða.








