Gegnum tíðina hafa stöku ferðamenn af tilviljun rambað inn í smábæinn Bugarach við rætur Pýreneafjalla en þar búa um 200 manns í sátt og samlyndi við náttúruna og láta lítið fyrir sér fara. Nú er smábærinn hins vegar skyndilega kominn á kort fólks sem kennir sig við nýöld og þangað hópast nú fólks hvaðanæva úr heiminum. Eða það allavega óttast bæjarstjórinn mjög. Ástæðan sú að þessi örlitli smábær er hin nýja örkin hans Nóa.
Fullyrt er af spekingum nýaldarfólks að þann 21. desember verði heimsendir hér á jörð og er þar vísað til tímatals Maya sem tekur enda þann dag á þessu ári. Vísindamenn gefa lítið fyrir hrakspárnar og segja ekkert benda til heimsendis þó tímatal fólks sem lifði fyrir mörgum öldum hafi ekki náð lengra en til 2012.
Enginn veit nákvæmlega hvernig það kom til en í bókum nýaldarfólks er einn einasti staður á jörðinni sem verður hlíft fyrir heimsendi næsta desember. Það er einmitt franski smábærinn Bugarach.
Þýska tímaritið Spiegel fjallar um þessar skyndivinsældir Bugarach sem reyndar bæjarbúar eru lítt hrifnir af. Vinsældirnar má rekja til þess að við Bugarach er að finna fjallstind einn, Pic de Bugarach, sem leiðtogar nýaldarfólks segja að sé ekki annað en geymsla fyrir lífverur utan úr geimi. Þær lífverur samkvæmt kokkabókum öðlast líf þann 21. desember næstkomandi og bjarga þeim sem þá eru í bænum.
Kemur reyndar fram í Spiegal að ekki hefur enn orðið vart við neinn fjölda fólks þó skammt sé til heimsenda en haft er eftir bæjarstjóranum að nýaldarfólk hafi á undanförnum árum keypt upp allar jarðir í og við bæinn og fjallið.
Fer tveimur sögum af því hvort bæjarstjórinn er með ótta sínum að koma bæ sínum á kort ferðamanna eða hvort hann sjálfur er með lausa skrúfu eins og einhverjir bæjarbúar vilja meina. Það verður allavega ljóst hvort er þann 22. desember næstkomandi.
Verði allir heillegir og uppistandandi í kjölfarið er óhætt að mæla með ferðalagi á þessar slóðir Pýreneafjalla. Svæðið allt er stórkostlegt og útivistarfólk sérstaklega gæti unað sér hér um áraraðir.
View Bugarach í Frakklandi in a larger map






