Tíðindi

Brúka kort á ferðalögum en lítið annað

  27/09/2012desember 21st, 2013No Comments

Í ljós hefur komið að þeir sem allra mest ferðast í viðskiptaerindum nota lítið sem ekkert af öllum þeim aragrúa forrita, svokallaðra appa, sem bjóðast og eiga að létta snjallsímaeigendum ferðalögin.

Sýnir niðurstaða könnunar meðal þúsund breskra viðskiptaferðalanga að 90 prósent þeirra nota kort og vegvísa sem bjóðast gegnum snjallsíma og þá yfirleitt gegnum netið en flestallt annað fer fyrir ofan garð og neðan. Reyndar nota fjórir af hverjum tíu forrit á borð við TripIt og sami fjöldi nýtir sér app sem sýna hvort flug er á réttum tíma eður ei.

Allt hitt, sem mikið hefur verið gert úr síðustu misserin, og gera á ferðalögin yndislegri og upplýsingagjöf betri nota aðeins örfáir. Fjöldi slíkra appa skipta hundruðum á netinu bæði fyrir Apple síma og þá sem notast við Android kerfið.

Er þetta í takti við tilfinningu ritstjórnar Fararheill sem þó ferðast lítið um með viðskiptafræðingum per se. Reyndin er að þó eitthvað app sé stórkostlegt við eldhúsborðið í desember þegar ferð stendur fyrir dyrum þá er flest heilbrigt fólk of heillað af borg eða stöðum erlendis til að liggja yfir símanum þegar á staðinn er komið. Enda fátt skemmtilegra erlendis að rekast á eitthvað óvænt.