Tíðindi

Rykmökkur í augu viðskiptavina Icelandair

  26/09/2012No Comments

Margir kannast við að finna vörur í hillum verslana sem reynast svo vera dýrari þegar að kassanum er komið. Íslensk neytendalög eru alveg sallatær þegar slíkt á sér stað; viðskiptavinurinn á að fá vöruna á hilluverði.

Fimm borgir frá 14.900 krónur á tilboði frá Icelandair. Gallinn sá að flug fæst aðeins til tveggja af þessum fimm borgum á auglýstu verði. Það er lögbrot að mati Fararheill

Með sömu rökum er sennilega hægt að komast aðra leiðina til Denver í Bandaríkjunum fyrir 14.900 krónur því nákvæmlega það auglýsir Icelandair á vef sínum.Þar stendur, eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti, að í boði er flug til fimm áfangastaða flugfélagsins frá 14.900 aðra leiðina með sköttum og gjöldum. Þar á meðal er Denver en vitaskuld er ekkert slíkt í boði og ódýrasta fargjaldið aðra leið til Denver kostar 39.900 krónur.

Ritstjórn Fararheill gerði athugasemdir við slíkar auglýsingar á vef Iceland Express fyrir sólarhring síðan og ber að virða það við forsvarsmenn þess fyrirtækis að það var lagfært í kjölfarið.

Ef við leikum okkur aðeins og breytum auglýsingu Icelandair í auglýsingu frá matvöruverslun. Hún myndi hljóða þannig: Nauta-, svína- og lambakjöt á tilboði frá krónum 250. Væri einhver að fara að sætta sig við að greiða svo 650 krónur fyrir lambakjötið þegar í verslunina er komið? Hætt er við að símatímar rabbþátta á Útvarp Sögu og Bylgjunni myndu sennilega fljótt loga þegar brimfúlir viðskiptavinir hringja inn og kvarta.

Fararheill sendi Neytendastofu fyrirspurn um hvort Icelandair þurfi ekki að selja ferð til Denver á 14.900 krónur miðað við auglýsinguna en ekkert svar hefur enn borist þegar þetta er skrifað.