Icelandair býður til hádegis á morgun flug til fimm áfangastaða sinna á sértilboði. Prísinn góður og ekki skemmir að í öllum tilvikum nær ferðatíminn langleiðina að jólum og gefur því verslunarglöðum tækifæri til að kaupa gjafir sínar erlendis þetta árið og væntanlega spara góðan skilding.

Amsterdam er ávallt skemmtileg heimsóknar og fólkið þar vingjarnlegt og ekki minnkar það í jólamánuðinum
Áfangastaðirnir sem um ræðir að þessu sinni eru Osló, Helsinki, Frankfurt, Amsterdam og Denver.
Verslunarlega séð er strax hægt að útiloka Helsinki og Osló enda báðar borgir mun dýrari almennt en hér á landi. Hvorug þeirra halda heldur vatni í jólalegu tilliti samanborið við Frankfurt eða Amsterdam sem báðar búa yfir mið-evrópskum jólasjarma frá fornu fari og í báðum þeim síðarnefndu eru dúllulegir jólamarkaðir í miðbænum komnir upp strax í nóvember. Vissulega finnst slíkt einnig í Osló og Helsinki en sjarmann vantar.
Að auki er verðlag í Frankfurt og Amsterdam betra en í norrænu borgunum tveimur og ekki má heldur gleyma að veðurfar getur verið öllu leiðinlegra norðan í álfunni.
Fimmta borgin á sértilboði er svo Denver í Bandaríkjunum. Þar er líka jólaandi yfir vötnum og jólamarkaðir að evrópskum stíl settir upp þegar nær dregur jólum. Hér er hægt að gera ódýrustu kaupin af þessum fimm borgum en flugið er langt og einhvern veginn eiga jólin meira heima í Evrópu en í Bandaríkjunum.
Billegastar eru ferðir til Osló og Helsinki í boði á 14.900 krónur aðra leiðina með sköttum og gjöldum og ferðatíminn í boði frá 12. október til 16. desember.
Til Frankfurt og Amsterdam er komist fyrir 16.900 aðra leiðina á tilboðinu. Frankfurt í boði frá 22. október til 17. desember og Amsterdam frá 1. nóvember til 14. desember. Galli reyndar við Amsterdam að þar er gisting í dýrari kantinum.
Punga verður út 39.900 krónum fyrir farið aðra leiðina til Denver en ferðatíminn þangað nær frá 30. október til 17. desember.
Heimasíða Icelandair hér.






