Það tók ein 40 ár en nú geta bjór- og vínelskendur loks heimsótt töfraríki Disney í Flórída í Bandaríkjunum án þess að fara á taugum útaf alkóhólskorti.

Lengi vel var sennilegast eini vínlausi franski veitingastaður heims í Disneyworld í Flórída. En ekki lengur.
Eru guðaveigarnar reyndar takmarkaðar við franskan veitingastað sem Disney rekur á lóð sinni og var ákvörðunin tekin eftir fjölda kvartana gesta þess efnis að hvergi fengist eitthvað sterkara en gos í þessum stærsta og frægasta skemmtigarði heims.
Hefur reyndar Disney fyrirtækið fyrir löngu leyft sölu áfengis í öðrum skemmtigörðum sínum um heim allan og var sá í Flórída sá eini þar sem slíkt var ekki í boði fyrr en nú.






