Ferðatilboð

Vika með öllu í Hurghada á 130 á mann

  25/09/2012apríl 27th, 2013No Comments

Lágmarkshiti í október: 20 stig. Allt innifalið á fimm stjörnu hóteli á einni yndislegustu strönd Rauðahafsins. Þarf að segja mikið meira…..

Það held ég nú bara. Aðeins betri aðstæður til köfunar hér en í grútskítugu Miðjarðarhafinu

Hafi fólk vilja og örlítið þrek til að gera hlutina á eigin spýtur er komist til strandbæjarins Hurghada við Rauðahafið í Egyptalandi nú í október fyrir rétt tæpar 130 þúsund krónur á mann á ofangreindu fimm stjörnu hóteli með öllu inniföldu í vikutíma.

En hængur er á sem endranær. Til að nýta sér þetta ágæta boð á framandi stað þarf að bóka hjá frönsku ferðaskrifstofunni  Nouvelles Frontieres og auðvitað koma sér og sínum til Parísar á tilsettum tíma. Þannig að við bætist sá kostnaður.

Það þarf þó ekki alveg að fara með allt. Samkeppni ríkir loks í millilandaflugi frá landinu og ferðir fást til meginlandsins, þar á meðal Parísar, á ágætu verði.

Fleiri dagsetningar eru í boði á ýmsum tilboðum sem nú finnast hjá ferðaskrifstofunni frönsku og gilda um ferðir næstu vikurnar. Fyrstur kemur fyrstur fær en engar skal hafa áhyggjur af því að bóka því Nouvelles Frontieres er ein þekktasta ferðaskrifstofa heims.


View Hurghada í Egyptalandi in a larger map