Iceland Express býður nú til miðnættis tilboðsverð á ferðum til Berlínar, Alicante og Kaupmannahafnar en beitir þó blekkingum í leiðinni.
Eins og sjá má á skjáskoti af heimasíðu Iceland Express eru allir þrír áfangastaðir auglýstir frá 14.950 krónum aðra leið með sköttum og gjöldum.
Svo er þó fjarri lagi. Aðeins fæst far á 14.950 krónur til Kaupmannahafnar en Berlín kostar að lágmarki 15.700 og billegasta fargjaldið til Alicante öllu meira eða 20.700 krónur aðra leið.
Þetta er hreint ömurleg aðferð við að blekkja viðskiptavini að mati ritstjórnar Fararheill því leita má til eilífðar, eða allavega til miðnættis í kvöld, án þess að finna fargjald til Alicante á 14.950 krónur eins og auglýsingin lofar.
Hefði verið svo ýkja flókið að eyða eins og mínútu í viðbót við auglýsingagerðina og færa fólki sönn og raunveruleg tilboð?
Nei, best að beita blekkingum og láta hugsanlega viðskiptavini eyða tíma sínum til einskis við leit.
Heimasíða Iceland Express hér.







