Ein sú ferðaskrifstofa sem býður hvað fjölbreyttast úrval ferða hérlendis er Bændaferðir sem er þrátt fyrir nafnið ekki eingöngu fyrir bændur. Engar eru þar í boði sólarlandaferðir, golfferðir eða aðrar sem ómissandi þykja hjá samkeppnisaðilum. En allar ferðir Bændaferða vel fram á næsta ár eru orðnar eða að verða uppseldar.

Fjölmargar ferðir í boði Bændaferða eru orðnar uppseldar langt fram í tímann. Það telur ritstjórn Fararheill sýna að Íslendingar kunna sannarlega að meta fjölbreytni í ferðavali
Ferðir þeirra eru af margvíslegum toga og oft til áfangastaða sem almennt eru ekki í boði með öðrum ferðaskrifstofum eða flugfélögum. Þá eru þær margar ekki beint ódýrar heldur en það virðist ekki koma að sök. Allar haustferðir Bændaferða eru uppseldar og nýbúið að bæta við aukaferð í október.
Sé litið lengra fram í tímann kemur í ljós að allmargar ferða þeirra næsta sumar eru einnig uppseldar orðnar.
Þetta er mjög til eftirbreytni að mati ritstjórnar Fararheill sem gagnrýnt hefur að sumardagskrár margra mun stærri ferðaskrifstofa eru hreint ekkert kynntar fyrr en eftir dúk og disk og jafnvel jól líka. Enn er til dæmis alveg á huldu hvaða ferðir Úrval Útsýn, sem stærir sig af að vera landsins stærsta ferðaskrifstofa, hyggst bjóða upp á næsta vor og sumar.
Fararheill telur þetta ennfremur sýna áhuga landans á fjölbreyttari ferðamöguleikum en alla jafna eru í boði og fagnar því mjög að smærri aðilar skuli sjá sóma sinn í að bjóða slíkt.
Heimasíða Bændaferða hér.






