Vart hefur farið framhjá lesendum að ritstjórn Fararheill elskar nýja og spennandi áfangastaði og óhætt að tvöfalda þá ást þegar til þeirra er komist í beinu flugi frá Íslandinu góða.

Paterhof hallarsvæðið er oft kallað Versalir Rússlands og það vita þeir sem skoðað hafa Versali að nokkrar klukkustundir duga lítt til að komast yfur allt þar.
Af þeim nýju áfangastöðum sem í boði verða næsta sumar og hafa þegar verið kynntir stendur hæst Sánkti Pétursborg í Rússlandi en sú borg er hressandi í öllu andlegu tilliti.
Tvennt sérstaklega gerir Pétursborg að góðum kosti fyrir þá sem vilja auðga andann. Miðað við bókunarvél Icelandair í dag fást fargjöld fram og til baka næsta sumar ódýrast á 50.730 krónur á mann með sköttum og gjöldum. Það er litlu hærra verð en til London eða Kaupmannahafnar.
En annar stór plús við Pétursborg er að verðlag þar er töluvert eðlilegra en gengur og gerist í Moskvu svo dæmi sé tekið. Lausleg úttekt á hótelvefnum Hotelscombined leiðir í ljós að sé bókað nú fást þar herbergi á ágætum þriggja til fjögurra stjörnu hótelum miðsvæðis allt niður í sex til sjö þúsund íslenskar krónur. Það er með því allra ódýrasta sem gerist í borgum Evrópu.






