Tíðindi

Skjót viðbrögð Icelandair og Iceland Express

  27/09/2012No Comments

Bæði Iceland Express og Icelandair hafa lagfært og leiðrétt auglýsingar sínar í kjölfar gagnrýni Fararheill.

Misvísandi auglýsingar flugfélaganna heyra vonandi fortíðinni til

Fararheill gagnrýndi auglýsingar þessara aðila í gær og fyrradag þar sem báðir auglýstu tilboðsferðir til nokkurra áfangastaða sinna á einu og sama verði.

Hjá Iceland Express mátti meðal annars ráða að hægt væri að komast aðra leiðina til Alicante á Spáni fyrir 14.950 krónur þegar ódýrasta fargjaldið kostaði 20.700. Sömuleiðis auglýsti Icelandair aðra leiðina til Denver í Bandaríkjunum á 14.900 krónur þegar ódýrasta fargjaldið þangað kostaði í raun 25 þúsund krónum meira eða 39.900.

Báðir aðilar hafa gert bragarbót á og ætti eftirleiðis enginn að velkjast í vafa um tilboð þessara fyrirtækja.