Tíðindi

Hér er sannarlega hættulegt að synda

  27/09/2012No Comments

Okkur hér á Fróni berast reglulega fréttir af hákarlaárásum í og við strendur Bandaríkjanna eða Ástralíu þó slíkar árásir séu reyndar fráleitt margar. Mun færri, eða engar, fregnir berast hins vegar hingað af hákarlaárásum við strendur Recife í Brasilíu en í sjónum þar er sennilegast hvað hættulegast að synda í gervöllum heiminum.

Strendur Recife þykja þær bestu í Brasilíu allri. En sjóunnendur þurfa að deila svæðinu með hákörlum sem eru hættulegri en annars staðar í veröldinni.

Þar er svo hættulegt að vera að samkvæmt vef BBC þora sjálfir strandverðirnir ekki að æfa sig í sjónum sjálfum heldur láta nægja að taka sundtökin í sundlaugum. Þeir eru líka einu strandverðirnir sem vopnaðir eru sérstökum raftækjum sem trufla eiga hákarla sem gera sig líklega til árása á buslara.

Strendur Recife eru með þeim allra fallegustu í Brasilíu og þar með í heiminum og trekktu og trekkja enn að þúsundir til að njóta strandlífsins. Þær voru þar til fyrir tveimur áratugum eða svo einhverjar þær hreinustu sem fundust. Síðan hefur mikið skólp runnið til sjávar í orðsins fyllstu og í skólpið sækja hákarlar í vaxandi mæli.

Alls eru skráðar 56 hákarlaárásir við Recife á 20 árum sem eru ekki fleiri árásir en skráðar eru á öðrum stöðum þar sem strandgestir busla nálægt hákarlaslóðum.

Það sem hins vegar setur atvikin við Recife í annan og hættulegri flokk er að þar látast tæplega 40 prósent þeirra sem verða fyrir slíkum árásum. Meðaltalið við strendur Bandaríkjanna, Ástralíu eða S.Afríku er hins vegar aðeins 19 prósent.


View Recife í Brasilíu in a larger map