Við hér fjallað um og mikið gagnrýnt jólagjafabréf Icelandair frá árinu 2010. Mestmegnis fyrir alls kyns takmarkanir á notkun slíkra bréfa. En hingað til hefur fólk þó getað grætt lítið eitt á slíkum kaupum. Ekki lengur!

Jólagjöfin sem gleður segja markaðsmenn Icelandair. Kannski það en enginn græðir nema Icelandair. Skjáskot

Við hér áður fjallað um hve hræðileg gjafabréf hvers kyns eru fyrir fávíst fólk. Fyrirtækin eru að fá greiðslur vikum, mánuðum og jafnvel árum ÁÐUR en hlutir eða þjónusta er notuð. Svo ekki sé minnst á þá sem GLEYMA að þeir eiga gjafabréf og þau runnin út þegar eitt stykki finnst um síðir milli skips og bryggju.

Sem er einmitt trixið við gjafabréf. Fimmti hver einstaklingur gleymir slíkri gjöf ofan í skúffu og verslunin eða þjónustuaðilinn er x-krónum ríkari fyrir alls ekki neitt. Þetta er prógramm sem ítalska mafían hefði verið stolt af að uppgötva. Ísí, ísí monní. Eins og það sé ekki nóg þá sýna rannsóknir að gjafabréfaeigendur eyða MEIRI peningum en ella. Það nefninlega auðvelt að eyða „oggupons” meiru þegar þú ert með eitthvað gjafabréf í höndum sem kostaði þig ekki neitt. Saga Class kostar jú bara 30 þúsund kall í viðbót í stað þess að kosta 60 þúsund meira. Stór hugsunarvilla.

Að því sögðu er Icelandair þetta árið ekki að bjóða svo mikið sem 0,0001 prósenta afslátt af flugi eða ferðum ef keypt er jólagjafabréf hjá fyrirtækinu. Fimm þúsund króna jólagjafabréf gildir bara sem fimm þúsund króna greiðsla upp í næsta flug með Icelandair. Tíu þúsund króna bréfið bara sem tíu þúsund króna greiðsla og svo framvegis og svo framvegis. Sem er ekki sérstaklega spennandi kostur nú þegar morgunljóst þykir að flugfargjöld munu hækka nokkuð á nýju ári.

Þetta kallast svindl, svínarí og jafnvel verðbólga líka. Það var jú svo lengi vel að fimm þúsund króna jólagjafabréf dugði sem tíu þúsund króna greiðsla upp í flug og ferðir, tíu þúsund króna bréf sem fimmtán þúsund krónur og koll af kolli. Þú varst sem sagt að græða lítið eitt á því að kaupa eða eiga jólagjafabréf þó takmarkanir væru lítið eitt færri en ævintýrin í 1001 nótt.

Aðalatriðið þetta: Gjafabréf Icelandair gildir sem peningagreiðsla upp í öll flug Icelandair.

Jamm og amen. Er þá ekki gáfulegra að gefa bara pening 🙂