Stór orð, litlar efndir. Hljómar eins og við séum að fjalla um Katrínu Jakobsdóttur en svo er ekki. Við erum að tala um einn helsta stórvesír landsins í bisness; Skúla Mogensen.

Afar stutt gaman með Wow Air til Flórída.

Það eru liðlega þrír mánuðir síðan Wow Air tilkynnti með smá pompi og minni prakt að eftirleiðis byðist Íslendingum samkeppni vestur um haf til Flórída. Nánar tiltekið til Orlandó þangað sem margir sækja árlega.

Flottar fréttir á þeim tíma. Icelandair ekki bara okrað á þeirri flugleiðinni um áratugaskeið án þess að skammast sín eitt augnablik.

Samkeppni til þessa vinsæla áfangastaðar var því mjög velkomin af okkar hálfu og líklega þúsunda annarra sem elska Flórída og vilja helst hvergi annars staðar vera.

Sólskinsparadísin Flórída brátt aftur í einokunarpakkann.

Alas, sá draumur er úti!

Ef marka má bókunarvél Wow Air fellur allt flug til Flórída niður strax um miðjan janúar. Sem sagt; fimm mánuðum eftir að tilkynnt var um grimma samkeppni til Flórída.

Hmmm.

Ók, þetta kemur ekkert á óvart núna þegar vitað er að Wow Air berst í böggum Hildar. En hvað var herra Mogensen og hans fólk eiginlega að pæla í september? Innanhúss vissu allir yfirmenn um herfilega stöðu flugfélagsins en samt tekin ákvörðun um að dúllast í samkeppni til Orlandó. Samkeppni sem varla komst á flug.

Heimskulegt í meira lagi en ennfremur neikvætt fyrir landann. Hvað það hefði verið ljúft að búa við fákeppni fremur en einokun til þessa ljúfa fylkis…