L ífið er stundum skrambi erfitt og öll eigum við okkar slæmu stundir hvort sem við erum rík eða fátæk, feit eða mjó, bændur eða brúarsmiðir, falleg eða ljót.

En jafnvel þó að ljósið við enda ganganna sé aðeins hraðlest að aka yfir okkur þá er okkur flestum í blóð borið að brosa tiltölulega auðveldlega að öllu saman og stundum aldrei breiðar en þegar lífið er hvað erfiðast. Bros gerir alla fallegri, bros er smitandi, bros léttir áhyggjum, bros hreyfir andlitsvöðva og gerir okkur unglegri og síðast en ekki síst fyllist líkaminn af efnum á borð við endorfíni og seratóníni þegar við brosum. Þau efni hjálpa okkur að líða vel. Og er til eitthvað betra í lífinu en að líða vel?

Þess vegna tókum við saman nokkur opinber og ekki svo opinber kynningarmyndbönd sem bæði eru fyndin og skemmtileg og kveikja kannski á einu brosi eða svo.

  • KANARÍEYJAR á Spáni

  • QUEENSLAND í Ástralíu

  • CLEVELAND í Bandaríkjunum

  • NÝJA-MEXÍKÓ í Bandaríkjunum

  • PATTAYA í Tælandi

  • SVISS

  • NORÐUR KÓREA

  • KALIFORNÍA í Bandaríkjunum

  • ÁSTRALÍA (með gerviaugum Russell Crowe)