Tíðindi

Forfallaferðir hjá Heimsferðum

  17/12/2010nóvember 21st, 2014No Comments

Heilli sól og sandur og ekkert sé framundan sem tiltökumál er að sleppa er margt vitlausara en skjóta sér til Kanaríeyja um jól og áramót en sökum forfalla auglýsir ferðaskrifstofan Heimsferðir nú slíkar ferðir en brottför er eftir þrjá daga.

Um er að ræða sex sæti til Tenerife og fæst flug fram og til baka á 59.900 krónur sem er engin hörmung en í dýrari kantinum miðað við þriggja daga fyrirvara. Er sú ferð fjórtán daga.

Fimm sæti eru einnig laus með ferðaskrifstofunni til Gran Canaria en þar eru þó aðeins í boði flugsæti út en ekki til baka. Kostar það flug 29.900 krónur og er ekki billegt heldur miðað við lítinn fyrirvarann.

Heimasíða Heimsferða hér.